31mars

For u my Ţóra!

Jæja stelpur.. apríl kominn og við ekki búnar að hittast allar síðan 6. janúar, útlitið ekki alveg nógu gottÓákveðinn 
En allavega sama sagan hérna megin alltaf. er komin í sumafrí í körfunni (snökt snökt) og því bjóst eg við að það væri mun minna að gera hjá mér en nei! þá er skólinn sko á fullu, þá meina ég a fullu!ég mæti aftur í tíma 14. apríl eftir vettvangsnámið og þá á ég eftir að skila í kringum 12 verkefnum áður en prófin byrja.. ja frábært! Nú er ég lika bara að læra og læra. En ég fer allavega bara í 2 próf, og eru þau 14 og 16 maí. PS Jóhanna til hamingju með að hafa nað heimspeki;) vona eg verði svo heppin haha!
Ernu mestmegnis í Grindó hja mömmu gömlu;* og flyt eg aftur til hennar nu í lok Maí. Held það verði bara gott að búa her aftur. En er svo a biðlista fyrir studentaibúð;)
Uhh held að það sé nú ekkert meir að frétta frá mér, en þessi færsla er nu AÐALEGA fyrir hana þóru mína sem var svo dugleg að blogga hér í denn hehe.
Vona að ég sjáin ykkur nu sem fyrst.
nu er eg laus öll kvöld nema fimmtudaga, smá hint fyrir þann sem heldur næst saumó;)

Sakna ykkur alveg rosalega, það er eins og við búum á sitthvoru landinu!
Helga
31. mars 2008 klukkan 19:36
seis-chicas
2 athugasemdir
03mars

Good bye ţjóđhátíđ HELLO San Francisco and New York ;)

Þar sem hún Þóra er eina af okku sem heldur þessari síðu uppi varð ég bara aðeins að leysa hana af í þetta skiptið ;)


Annars er voðalega lítið að frétta af mér er bara í skólanum á fullu og gengur held ég bara ágætlega þar og ég get ekki beðið eftir að útskrifast :D annars er nú svolítið kjánalegur tíminn á útskriftinni þar sem hún er á föstudegi en kannski maður haldi bara smá kaffi á föstudeginum og partý á laugardagskvöldið ;) svo eftir það er það bara vinna á fullu og fá smá penge :)

Maður verður að eiga penge ef maður ætlar að fara til útlanda í sumar er það ekki? ;) Jább við fjölskyldan mamma, pabbi, ég, Jenný, Jens og Freyr ætlum að skella okkur út til San Francisco og í leiðinni heim komum við við í New York í 3 daga þar sem það er ekki beint flug til San Francisco verðum við að millilenda þar og ætlum að skoða okkur aðeins um í 3 daga og ég get ekki beðið :D Þjóðhátíð verður bara að bíða eftir mér í ár í viðbót :p Ég hef ekki farið til San Francisco í 8 ár í sumar þannig að þetta verður geðveikt :) hitta 2 nýja fjölskyldumeðlimi og eina sem ég hef ekki hitt en er búin að vera í fjölskyldunni í svolítinn tíma og ég hef heyrt helling um og hef séð á myndum þannig að það verður gaman loksins að hitta hana :) eeeen stelpur við verðum að fara í einhverja útilegu í sumar eða bústaðarferð og við verðum að fara ALLAR og þá er ég að tala um allar!!! Þóra þú líka ;) Ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur allar það er sko löngu kominn tími á hitting það mætti halda að við værum allar á sitthvorum landshlutanum við hittumst svo sjaldan =/


En ég hef ekkert meira að segja í bili en ég vil óska bumbulínunni minni henni Svanhildi og honum Bjössa innilega til hamingju með risastóra barnið sitt sem lætur sjá sig seinnipart ársins ;)


Sigrún

03. mars 2008 klukkan 23:02
seis-chicas
8 athugasemdir
27febrúar

Ţarf bara ađ koma ţessu á framfćri..

Ég kemst alltaf betur og betur að því með hverjum deginum hvað þið eru æðislegar vinkonur og enginn mun nokkurn tímann geta tekið ykkar stað, ekki fræðilegur!

Þurfti bara að koma þessu frá mér :)

Hvernig er staðan 5. mars, 12. mars, 15., 16., 17. mars? :) ég er allavegna alveg laus þessa daga :)

thora
27. febrúar 2008 klukkan 23:14
seis-chicas
3 athugasemdir
15febrúar

Nćsti saumó! ALLAR AĐ COMMENTA!

15 dögum seinna var svo kominn tími á nýja færslu, en aftur var það ég, ég ætla þess vegna að skora á ykkur að koma með færslu fyrir mánaðarmót feb/mars :)

en þóra námshestur, hefur enga einbeitningu eftir rúmlega 7 klukkustundir í skólanum, og hefur því ákveðið að gefa skít í seinasta fyrirlesturinn og blogga, góð!

een ástæðan fyrir því að ég ætlaði að blogga var að tjékka hvenær það hentar ykkur að halda saumó?
sko hjá mér eru mánudagar, þriðjudagar og fimmtudagskvöld soldið busy, en ekkert einhvað sem ekki er hægt að breyta, svo er árshátíð hjá skorinni 23. febrúar á nú eftir að meta það hvort ég fari á það, svo polo mótið bara um daginn 24. en laus um kvöldið og laus á föstudagskvöldinu en svo er Helga hugsa ég að fara vinna bikarinn 24. þannig að eftir það? :D

Segið hvað hentar ykkur annars tek ég ekki tillit til ykkar múhahaha :) góð leit til að láta ykkur commenta :)

Þóra

ps. það er bara ósanngjarnt gagnvart mér að ég sé með í könnunninni, því greyjið kári er búinn að sitja uppi með mig í mörg ár þá á ekki að ráðast á greyjið kára og kjósa mig! góð rök? Þetta er eins og að taka úrtak og það séu 6kvk í honum, allar 20 ára nema ein 60 ára. Þið skiljið, ég þá 60 ára. Allir verða vera með sömu eiginleika í könnunninni ekki svona pakk eins og ég :)
15. febrúar 2008 klukkan 14:44
seis-chicas
3 athugasemdir
01febrúar

Eigum viđ ekki ađ halda ţessu viđ?

Mér finnst sambandið okkar á milli alltof lítið til þess að hætta svo líka með þetta blogg, þá veit ég lítið sem ekkert hvað er að gerast hjá ykkur og þið vitið lítið sem ekkert hvað er að gerast hjá mér! Ég ætla allvegana að sjá hvort ég nenni ekki að koma með eina og eina færslu og myndi þykja mikið vænt um það ef þið mynduð líka gera það Brosandi

Það sem er í fréttum af þessum bænum eru bara þær að mér gekk bara ljómandi í prófunum í desember, hefði auðvitað vilja fá hærri einkannir en ætli maður þurfi þá ekki að vinna fyrir því Glottandi Ég hélt svo að þessi önn yrði leiðinleg en enn sem komið er, er hún búin að vera rosa skemmtileg og áhugaverð. Ætla aðeins að segja smá frá hverjum áfanga, lesið það ef þið hafið einhvern áhuga á því.

  • Almenn sjúkraþjálfunarfræði  - þar er ég að læra taka sögu af sjúklingum og taka test til að tékka hvað sé ekki með eðlilega starfsemi og setja markmið og búa til meðferðir og svoleiðis, mjög skemmtilegt. Klára samt þann áfnaga um miðjan febrúar, þannig að eitt lokaprófanna nálgast
  • Meinafræði - þar er ég að læra um t.d. hvað gerist í frumunum þegar það kemur bólga og sýkingar og um illkynja og góðkynja æxli og einhvað fleira sem tengist frumustarfseminni við áverka. Kennarinn er algjör snillingur. Erum með 2. árs tannlæknanemum í þessu.
  • Sjúkdóma og sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis - Í þessum áfanga erum við að læra um áverka á bein, liði, liðbönd, vöðva og sinar og svo álagseinkenni og sjúkdóma á hrygg og útlimi. Erum mikið búin að vera læra um gigtarsjúkdóma og fleira. Spurði gigtarlækninn sem kenndi okkur slitgigt hvort það að braka í fingrum hafi einhver alverlegar afleiðingar í för með sér og viti menn, hann sagði nei, þetta væri eðlilegt að losa um loftið í liðum, held ég hafi aldrei orðið jafn glöð Hlæjandi En í þessum áfanga eru 50 verklegir tímar þannig að við komum til með að vera mikið inní verklegu stofu að læra liðlosun og einhvað skemmtilegt vonandi. En stóri mínusinn við þennan áfanga er að það eru yfir 20 kennarar, þannig að ég þekki engann þeirra á nafni, en það er svo sem í lagi, fær þá allavegana ekki ógeð af honum.
  • Sjúkdóma og sjúkraþjálfunarfræði taugakerfis - Í þessum áfanga lærum við um sjúkdóma taugakerfisins eins og parkison, ms, mnd heilalbóðfall og alla þessa sjókdóma og hvaða áhrif þeir hafa í för með sér, enn sem komið er er þetta mjög skemmtilegur áfangi, förum soldið mikið uppá grensás og í fossvoginn og fáum þá kynningu á sjúklingum, mjög fróðlegt að fá þetta svona beint. Fékk einmitt svona yfir mig að ég væri alveg til í að vinna með mikið veiku fólki sem þyrfti að læra að ganga á ný, held það gæti verið mjög spennandi og skemmtilegt.
Þannig að þetta verður að öllum líkindum erfið en skemmtileg önn, ég vona það allavegana.

Svo er ég og Jóhanna búnar að vera meika það í water poloinu, segi kannski ekki meika það, höfum allavegna látið sjá okkur og gert okkar besa. Persónulega finnst mér þetta mjög skemmtilegt og líka erfitt í leiðinni sem er ekki verra, lenti reyndar í því fyrir tæpri viku eða svo að hrynja niður í hálkunni. Var að rölta til jóhönnu, þarna á milli húsanna og rann þá bara í hálfgert splitt en samt þannig að fremri fóturinn var boginn við hné þannig að sköflungurinn snéri út. Ég man ekki nákvæmlega hvað gerðist en ég hef einhvernveginn borði hendurnar vitlaust fyrir mig með þeim afleiðingum að ég var með þá tilfinnungu að ég væri dauð þreytt í báðum framhandleggjum, svo daginn eftir var þetta bara í hægri handlegg, og er búið að vera þannig síðan, er búin að láta krakkana í bekknum þreifa þetta og þau halda öll að ég sé bólgin hægra megin sem mér finnst ekki ólíklegt, þannig var allavegana verkurinn, en ég er þá líka bara búin að vera að synda á fótum verð hel mössuð á fótununum eftir þessa törn Brosandi

Svo er ég að reyna borða svona með danska við hliðsjónar, það er sjúklega erfitt, er búin að vera með nammiþörf í allan dag, var að éta ananas úr dós núna til að reyna slá einhvað á þetta, gengur einhvað lítið en ég þrauka þetta Glottandi

Ég og Jóhanna fórum samt á culiacan á föstudaginn fyrir viku, þá var stelpan ekki alveg að reikna dæmið rétt og lét mig borga 170 kall of mikið, það var ekkert mál jóhanna boraði bara minna, en það fyndna var að ég og kári fórum núna áðan á culiacan aftur og aftur lét sama stelpan okkur borga 170kr of mikið, og ég svona heyrðu vinan, og hún vildi ekki kannast við mistökin og þurfti að reikna þetta í símanum þá var þessi blondie búin að setja stóran skammt þar sem átti að vera lítill, alveg eins og síðast, en hún gerði samt matinn fyrir mig. Alveg kostuleg, en ég held ég samt farin á svarta listann þarna fyrir röfl Glottandi

Annars er voða lítið dagskrá á næstunni, árshátíð FNÍS er 23. febrúar, ætli maður láti ekki sjá sig þar, reyndar er water polo dagurinn, daginn eftir árshátíðina, veit samt ekki hvernig það verður hvort við stelpurnar verðum einhvað að spila, held það þurfi soldið mikið að gera svo við verðum keppnishæfar haha Ullandi

Æi ég held þetta sé alveg að verða komið, ekket skemmtileg blogg ég veit, en blogg var það Glottandi
- Þóra

ps. er búin að hlægja endalaust af jóðla stelpunni, endilega horfið á það, yndislegt http://youtube.com/watch?v=bDDEk2AMJAI&feature=related
01. febrúar 2008 klukkan 21:45
seis-chicas
4 athugasemdir
06september

Breytingar

Það hefur nú margt gerst frá síðustu færslu
  • Ég varð fullorðin í tölum, ekki alveg jafn fullorðin í hegðun
  • Fór í 3 anatomíu próf
  • Búin að fá 2 einkannir - náði báðum - en býst ekki við því að ná því seinasta
  • Þá veit ég líka ekkert hvað ég er að fara gera, næringafræði / vinna (á leikskóla)
  • Er flutt í æðislega íbúð sem ég er búin að koma mér voða vel fyrir í, ég er allavegana mjög sátt
  • Fékk að heyra Lindu brillera í göngutúr
  • og síðast en ekki síst fékk ég að busa í fyrsta skiptið á ævinni - og það var æði!
en já núna hef ég (og Kári), Linda og Jóhanna komið okkur vel fyrir á stúdentagörðunum og erum við allar búnar að koma okkur nokkuð vel fyrir, nú er árný ekki ein í reykjavíkinni lengur. Helga flutt á smiðjuveginn (man reyndar ekki hvað gatan heitir en ég kalla hana smiðjuvegur þangað til annað kemur í ljós :) ) og ég á alveg eftir að skoða hennar íbúð, bíð spennt eftir boði ;)

Já það er langt síðan ég slappaði eins mikið af og ég geri núna, dagarnir mínir einkennast af því að fara í skólann og vera á netinu þar, fara heim og horfa á friends (er búin með heila seríu nr. 3) elda, horfa á fréttir og horfa svo á meiri friends eða jafnvel einhvað á skjá einum. Ég nenni ekki að byrja að læra neitt fyrr en ég veit hvert þessi vetur stefnir, er ekki einu sinni búin að kaupa mér bækurnar :) voða nice allt saman. En já ég sem sagt náði báðum fyrir áramót áföngunum þannig að þegar ég fæ fall einkunnina mína þá verð ég bara í skólanum í janúar og febrúar og svo næ ég því að sjálfsögðu og fer svo á 2. ár :) en svo er bara spurningin hvað ég geri þess á milli, en það kemur bara í ljós :)

Já, ég, jóhanna og linda erum aðeins búnar að skoða nánasta umhverfi með göngutúr(um) og við komumst að því að linda er ekki alveg fær um að rata sjálf í reykjavíkinni því er það vissara að fyrsta mánuðinn fórum við allar hennar ferðir með henni, förum ekkert frekar útí það :)

Busunin = æði! Bara gaman að fá að busa og er heppin að fá að gera það 2svar, vúhú :) segi kannski meira frá henni seinna :)

en jæja var bara komin með leið á færslunni á undan, enda var alveg tími til komin að ný fékk að láta ljós sitt skína, og nú pressa ég á að commentin hrannist inn og ég mun ekki geta sinnt náminu vegna þeirra, bjartsýn, nei er það?

nóg í bili

~Þóra~
06. september 2007 klukkan 21:42
seis-chicas
3 athugasemdir
12ágúst

Afsakiđ, ert ţú ađ passa ţessa stóla?

Ákvað að henda svona einu bloggi inn til tilbreytingar...
Verlsunarmannahelgin afstaðin og klikkaði Þjóðhátíðin EKKI og verð ég lengi að hætta að hugsa um hvað það var ógeð gaman! Allt of mikið af góðum minningum, allt of mikið af skemmtilegu fullu fólki og Svo siddi(besti vinur hörpu), þarf maður að segja meir. Er strax farin að panta fyrir 2008 í huganum og það er Eins gott að þið komið með á næsta ári, því það eina sem vantaði voruð þið ;)
Jæja sumarfríið er búið (loksins er Rólo búinn) og byrjar leikskólinn á morgun, vá hvað ég hlakka ÝKT til að fa að vera þar i þessa viku:D
en er lika að fara að byrja i Baðhúsinu á morgum. Vá skrítið er að fara að flytja að heiman, fara byrja i nýrri vinnu og nýjum skóla allt á næstu vikum... og mest allt án Hörpu, þetta verður skrítið í byrjun!!

Helgin var Mjög róleg! vá 2 helgin í sumar frá djammi! ágætt að vera svona stillt alltaf..og  Hey en eg er game á sleepover hja Jóhönnu á menningarnótt;)
VOða lítið að segja fra samt, finnst óralangt síðan eg sa ykkur.. komnar 2 vikur! og þig þóra man ekki einu sinni hvenær!!!! gengur ekki...

en allavegana hætti með laginu sem ég er gjörsamlega með á heilanum!!
Afsakið, ert þú að passa þessa stóla?
Ertu ekki vinkona hans Óla?
Hann var að klára Kennó síðasta vor.
Óli eða Svenni, ég man ekki hvor
var í þessu partíi áðan.
Ég veit um stelpu sem að dáði hann.

Helga
ps va svo langt siðan eg bloggaði að þetta var bara kjanalegt..
12. ágúst 2007 klukkan 18:40
seis-chicas
2 athugasemdir
05ágúst

Brekkusöngur

Jæja núna stendur brekkusöngurinn sem hæst! Harpa hringdi í mig áðan og gaf mér smjörþefinn af þessu - mjög gaman að því, tók meira segja upp það sem hún hringdi!

En ég er ekkert búin að vera neitt voðalega hress í dag - en ég gat ekki annað en brosað þegar ég tók eyrnatappana úr eyrunum mínum fyrir svona 10 mínútum - þá heyrði ég í nágrönnunum mínum blasta brekkusönginn í botn og syngja með, einhvað lið sem er á algjörum bömmer yfir því að þurfa vera heima með börnin en upplifa þetta svo bara heima útá palli - hver segir að það sé ekki hægt að halda ódýra þjóðhátíð? Versta við þetta allt saman er að nágrannarnir mínir eru heldur laglaus ef ég á að vera hreinskilin :) en það er gaman að fá að upplifa smá þjóðhátíð hérna með þeim

Ég ætla reyna að halda áfram að læra og hressa mig í leiðinni - ekki veitir af!

Góða skemmtun í kvöld Helga, Harpa og Guðrún Ásta, þið lofuðu mér að drekka einn fyrir mig að minnsta kosti :)



~Þóra~
05. ágúst 2007 klukkan 23:30
seis-chicas
10 athugasemdir
02ágúst

Verslunarmannahelgin

Jæja komið að verslunarmanna helginni! oog annað árið í röð ætla ég að halda mér heima og vinna en Helga og Harpa ætla til EYJA og skemmta sér fyrir okkur allar, og jafn vel drekka bjór fyrir okkur allar :)



Lundinn klikkaði ekki, og hvað þá staupin - ógleymanlegt :)


Nokkuð margar myndir til af okkur 2 í brekkunni :)


Jóhanna var alltaf í stuði :)


Það var pósað í góða veðrinu á föstudeginum


Það rigndi á laugardeginum


Og það var helgið af sumum


Sunnudagskvöldið - ógleymanlegt

Góða skemmtun elskurnar mínar :)

má til með að henda inn 2 myndum sem ég fann frá því akureyri 2004


og

Ég hef ekkert breyst - er það nokkuð?

Góða skemmtun og farið varlega :D

Annars er lítið af mér að frétta - bara 11 vinnudagar eftir, tilhlökkunin mikil :) og svo afmæli 24. og innfluttningu 1. sept - bara spennandi :)

Annars er einn tónlistarmaður búinn að heltaka mig - það er ekki bubbi í þetta skiptið heldur KK, bara að hlusta á hann og tónlistina hans, röddina ooh, það er æðislegt :) hann verður í brúðkaupinu mín og jarðaförinni þannig að þið skuluð fara að meta hann svo þið skemmtið ykkur nú í bæði skiptin - hann er æði Hlæjandi

~Þóra~
02. ágúst 2007 klukkan 12:24
seis-chicas
3 athugasemdir
19júlí

101

Jæja, nú ætlar póstnúmerið 101 að taka vel á móti okkur því ég (þóra), linda og jóhanna erum allar komnar með íbúðir á stúdentagörðunum. Mikil gleði sem fylgir því :) Jóhanna fær afhent 17. ágúst en ég og Linda ekki fyrr en 1. september, þannig að það er mikill spenningur í loftinu!

Ég og Jóhanna gerðum okkur ferð í bæinn í gær til að skrifa undir samninga og versla í búið - ég held ég hafi aldrei gert neitt jafn skemmtilegt - einu sinni á ævinni (ætla ég rétt að vona) þarftu að kaupa þér nánast allt nýtt, maður þarf að hugsa fyrir öllu, maður rétt á rúm og sjónvarp eða svo ;) Það hvarlaði að mér að skilja körfuna eftir þegar ég kom að kassanum og versla allt aftur, svo skemmtilegt var þetta og linda er núna væntanlega að staulast inn með allt sitt hafurtask úr ikea :)

Ég og Kári festum kaup á svörtum 3 sæta leðurstól og eldhúsborði á lagersölu í dugguvoginum - mæli eindregið með því! Svo var keypt ryksuga og blandari og ristavél og svo nánast allt í eldhúsið nema nokkra hluti sem fá að koma síðar :) Ég og Jóhanna komum til með að eiga allt alveg eins, hehe reyndum að taka sitthvora litina þegar við gátum annars enduðum við með allt alveg eins ;)

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra - veit neflinlega ekkert hverjir vita af því að ég sé komin með íbúð - en hér með eru allavegana einhverjir búnir að fá að vita það :)

~Þóra~
19. júlí 2007 klukkan 20:38
seis-chicas
5 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: seis-chicas

Auglýsing

Seis chicas

Viđ erum sem sagt 5 sem stöndum ađ ţessari síđu. Búum víđsvegar um landiđ og gerum ólíka hluti. Međ ţessu bloggi erum viđ ađ fylgjast međ hvor annarri og skipuleggja hittinga. Ţessi síđa er svona meira fyrir okkur en ef ţú kćri lesandi hefur gaman af henni ţá er ţér guđvelkomiđ ađ lesa og skođa ţađ sem fer fram hér.
Helga, Jóhanna, Linda, Sigrún og Ţóra

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Könnun

Hver verđur fyrst til ađ eignast barn?

Atburđarteljari

Innskráningar kubbur